Auglýsing

Skitpum um blogg

06. september 2007 klukkan 12:47
ákváðum að skipta yfir í blog.is

slóðin er núna wwww.praha.blog.is :)

Dobry Den

04. september 2007 klukkan 17:29
Ahoj Ahoj
Erum mættar í Prag eftir kappróður um Evrópu.
Komnar með íbúð, byrjaðar í skólanum, drekkum ódýran bjór, borðum ódýran en misgóðan (ef ekki vondan) mat og lærum tékknesku.

Við mættum hressar og kátar á föstudaginn síðastliðinn til að fá stundaskrá og innritunardrasl og helstu upplýsingar um skólann. Það gekk mjöög vel að finna skólann en þegar þangað var komið vildi helst enginn kannast við okkur. Þá kom það í ljós að við hefðum ekki sent samþykki fyrir því að samþykkja það að vera samþykktar inn í skólann! Sem meikar jújú fullkomlega sence! ég meina hvernig í ósköpunum átti þeim að detta í hug að við ætluðum að koma, fyrst við vorum nú bara búnar að sækja um, senda þeim 1000 e-mail, senda mynd af mér(Siggu) og þurftum að senda 3-4 myndir af árný (virtust fyrir einhverja skrítna tilviljun alltaf týnast á leiðinni, sem er frekar einkenni legt þar sem þær fóru með umsóknunum og með mínum myndum, væri gaman að vita hvar allar þessar myndir af Árný hafa eiginlega endað???) en nóg með það. Eftir nokkur samtöl af bjagaðri ensku komumst við að samkomulagi um að hringa í Kristínu alþjóðafulltrúa heima á Bifröst, það gekk vel! að ýta á takkana allavegana, nema svo bara svaraði enginn á Bifröst, ekki fyrr en eftir 5 hringingar og nokkra klökka en hrausta hálsa. Til að gera stutta sögu styttri að þá gekk nú allt vel og fengum við inngöngu (þrátt fyrir að skólinn eigi ekki ennþá mynd af Árný).

Erum komnar í ágætis íbúð, setjum myndir af henni inn á síðuna um leið og einkaljósmyndarinn okkar verður búinn að mynda hana í bak og fyrir.

erum að fara út að fá okkur bjór.......